
Anthropic var að kynna Claude Opus 4.7 og er þar á ferðinni "incremental" uppfærsla sem er skorar betur á ýmsum mælikvörðum. Opus 4.7 gengur betur í lengri og flóknari verkefnum, og svo hefur það fengið umtalsvert betri sjónrænan skilning.
Við fengum þó ekki hið goðsagnakennda Mythos módel, sem Anthropic hefur metið sem of öflugt til þess að sleppa út vegna þess hversu naskt það er við að finna öryggisveikleika í hugbúnaði. Reyndar telja sumir að það sé vegna þess að Anthropic vanti einfaldlega reiknigetu til þess að geta rúllað stærra módeli út í stórum stíl.
Á sama tíma segja orðrómar að OpenAI sé líka að undirbúa útgáfu nýs módels sem gengur undir nafninu “spud” innanhúss. Svo er aldrei að vita hvort við fáum á næstu dögum uppfært Gemini líkan.
