
OpenAI gefur út ný open source líkön sem verður gaman að prófa. Þau eiga að vera á pari við o4-mini/o3-mini og annað þeirra á að vera hægt að keyra á fartölvu.
Anthropic svaraði með því að gefa út líkanið Opus 4.1 - líkan sem á að vera enn betra en Opus 4 - sem er mitt go-to líkan við forritun. Það verður gaman að prófa það.
Sterkir orðrómar eru svo á lofti um að nýja líkanið GPT-5 sé í vændum frá OpenAI. Jafnvel síðar í þessari viku.
En eitt það magnaðasta af þessu öllu (að GPT-5 óséðu) er þetta nýja "world model" frá Google Deepmind sem kallast Genie 3. Með þessu líkani er hægt að láta heilu heimana birtast fyrir framan sig, og það er hægt að ferðast um þá eða breyta þeim með promptum, líkt og maður sé að búa til sinn eigin tölvuleik - eða painting simulator!
What a time to be alive!