
Í sumar bjó ég til tölvuleikinn Fullkomlega eðlileg skýring - úr skjölum Jóns Árnasonar - og í dag er hann farinn í loftið.
Þetta er ævintýraleikur í anda Monkey Island, byggður á íslenskum þjóðsögum.
Þú spilar sem Jón Árnason, bókavörður og safnari þjóðsagna, sem lendir í yfirnáttúrulegum uppákomum í nítjándu aldar Reykjavík. Á leiðinni hittir hann fleiri sögupersónur sem þú getur líka stýrt.
Verkefnið fór af stað til að svara spurningunni: Hversu langt er hægt að komast í leikjagerð á íslensku með skýra skapandi sýn með gervigreind sem verkfæri í hugmyndavinnu, myndsköpun, talsetningu og tónlist?
Leikurinn er gerður á um tveimur mánuðum sem hliðarverkefni, og er sennilega metnaðarfyllsti leikurinn sem ég hef búið til. Þetta er fyrsti þátturinn - og mögulega koma fleiri þættir.
Spilaðu leikinn á jonsskjol.is.