Blogg

Tvær AI fréttir sem grófust undir fréttatilkynningum sumarsins

Mynd úr færslunni „Tvær AI fréttir sem grófust undir fréttatilkynningum sumarsins“

Í sumar náðu bæði Google DeepMind og OpenAI sögulegum áfanga þegar AI líkön þeirra leystu fimm af sex dæmum í Alþjóðlegu stærðfræðikeppni framhaldsskólanema (IMO) sem jafngildir því að hafa náð gullverðlaunum. Þetta var í fyrsta skipti sem AI nær árangri á heimsmælikvarða í einni erfiðustu rökfræðikeppni heims. Bæði fyrirtæki voru með líkön sem ekki hafa verið sett dreifingu.

Í júlí tók OpenAI þátt í einni fremstu forritunarkeppni heims með AI líkan, og náði þar 2. sæti. Aðeins pólski forritarinn Psyho stóð sig betur. Við erum að tala um keppni þar sem nokkrir færustu forritarar í heimi tóku þátt.

Sumir spá því að þetta hafi verið í síðasta skipti sem manneskja sigrar í keppninni.

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn