Blogg

Um Magnús á AI Summit hjá APRÓ

Mynd úr færslunni „Um Magnús á AI Summit hjá APRÓ“

Mér gafst tækifæri á að tala aðeins um Magnús, gervigreindaraðstoðarmann minn á AI Summit sem APRÓ stóð fyrir í gær.

Það má segja að Magnús sé umboðsmaður, þ.e. hann hefur umboð til að sinna ýmsum verkefnum fyrir mig í leik og starfi.

  • Hann tekur til á Sharepoint.
  • Hann uppfærir minnispunkta í Obsidian
  • Hann gerir drög að póstum og sendir fundarboð
  • Hann tekur að sér ýmis einfaldari verkefni á Github og Cloudflare.
  • Hann stofnar kúnna og verkefni í verkbókhaldinu

Auk þess sinnir hann mörgum verkefnum úr daglegu lífi, eins og að skipuleggja ferðalög, skipuleggja matarinnkaup og fleira.

Það sem mér finnst einkenna Magnús er að því meiri heimildir sem hann fær, því gagnlegri verður hann fyrir mig.

Í beinu hlutfalli við heimildirnar sem hann fær eykst áhættan á því að hann geri katastrófísk mistök (sem hann hefur ekki gert enn).

Það fer því dágóður tími í að tryggja að hann hafi réttu heimildirnar og að hann geti ekki látið utanaðkomandi fá upplýsingar án míns samþykkis.

Mér finnst Magnús vera sterk vísbending um að þróunin verði í þá átt að "agentinn" verði oftar hjá notandanum heldur en hjá "þjónustuveitandanum".

En frá sjónarhóli "þjónustuveitandans" felst í því áskorun að missa hluta af sambandinu við notandann. Samhengið, sagan og óskirnar færast frá þjónustuveitandanum yfir til notandans.

Mín tilfinning er sú að samhengið muni vinna á endanum.

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn