Blogg

Vélmennin koma!

Skjáskot úr myndbandinu „Vélmennin koma!“

Á dögunum kynnti Figure, bandarískur vélmennaframleiðandi, Figure 03 módelið. Figure 03 er vélmenni í mannsmynd, með höfuð, tvær hendur og fætur, eins og í vísindaskáldsögunum. Vélmennið er hannað fyrir verkefni innan heimilisins og í atvinnulífinu.

Í kynningarmyndböndum er Figure 03 sýnt setja í þvottavél, þjóna gestum, ganga frá diskum og setja þá í uppþvottavél. Vélmennið er sýnt í móttökustörfum í hótelmóttöku og í vinnu við færiband og í framleiðslu. Það er kynnt sem mjög fjölhæft vélmenni sem getur tekið að sér fjölbreytt verkefni á heimilinu og í atvinnulífinu.

Figure fékk á dögunum 1 milljarð bandaríkjadala í series C fjármögnun, og er þar með metið á 39 milljarða bandaríkjadala. Figure hyggur á að framleiða um 12.000 Figure 03 vélmenni fyrsta árið, en 100.000 vélmenni yfir fjögur ár.

Figure 03 er ekki eina vélmennið í mannsmynd sem er í þróun á heimsvísu. Fjöldi fyrirtækja hyggur á framleiðslu sambærilegra vélmenna. Helst ber þar að nefna Tesla og 1X sem var stofnað í Noregi en er nú komið með stærstan hluta starfsemi sinnar til Bandaríkjanna (vel gert EU).

Tesla og 1X hyggja bæði á fjöldaframleiðslu vélmenna í mannsmynd og stefna á að framleiða árlega "milljónir" slíkra vélmenna árið 2028. Mögulega verða komin milljónir vélmenna á markað, í lok árs 2028 - fyrir næstu alþingiskosningar.

Fyrirtækin stefna öll á, að til lengri tíma litið muni vélmennin kosta um 20 til 30 þúsund dali, sem er svipað og verðið á nýjum Toyota Corolla í Bandaríkjunum.

Gangi þessi áform eftir erum við að horfa fram á breytingar sem gætu orðið meiri en áhrif iðnbyltingarinnar. Vinnumarkaðurinn mun taka miklum breytingum og innan áratugs er mögulegt að vélmenni verði farin að taka þátt í heimilisstörfunum á stórum hluta heimila landsmanna.

En verðum við tilbúin?

Myndbandið er í færslunni á LinkedIn

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn