
Við höfum séð undarlegar stangir á þökum og í kringum byggingar. Fyrst héldum við að þetta væru eldingarvarar eða loftnet, en þegar við sáum fleiri og gátum skoðað þær betur sáum við að þær voru ekki jarðtengdar og ekki loftnet heldur.
Þegar við könnuðum málið nánar, komumst við að því að, þegar sótt er um byggingarleyfi í Sviss er skylda að reisa svona stangir á lóðinni sem sýna nákvæmlega útlínur og hæð fyrirhugaðrar byggingar. Svokallaðar baugespanne. Þannig geta nágrannar séð í raunstærð hvernig byggingin eða breytingin á henni mun rúmast í umhverfinu og lagt fram andmæli á kynningartíma ef þeim líst illa á.
Þetta eru nokkuð strangari reglur en heima á Íslandi þar sem nóg er að kynna fyrirhugaðar breytingar í dagblöðum eða á vefjum sem fáir lesa.
Ég er reyndar ekki endilega mikill aðdáandi aukins íbúalýðræðis (Sundabraut when?), en þessar stangir gefa manni klárlega betri tilfinningu fyrir mannvirkinu sem á að reisa og eru á sama tíma sjónræn áminning á því að breytingar standi til.

