
Orðið á götunni segir að hið goðsagnakennda Mythos líkan fari í útgáfu til Claude notenda á miðvikudag. Sennilega í aðeins breyttri útgáfu og með stærri girðingum til þess að tryggja að ekki verði hægt að nota það til illvirkja.
Fréttir af Mythos líkaninu komu fyrst fram í lok mars og var það sagt hafa ótrúlega hæfileika til þess að finna veikleika í hugbúnaði - og því hafi útgáfu þess verið frestað.
Gárungar hafa þó sagt að sennilegt sé að Anthropic hafi ekki haft reikniafl til þess að rúlla því út í stórum stíl. Það gæti þó hafa breyst, því Anthropic er sagt hafa bætt við sig samningum um 10GW af reikniafli.
Næstu dagar verða spennandi.
