Fyrirtæki og stofnanir sem vilja sjálfvirknivæða endurtekin verk, tengja saman kerfi eða nýta eigin gögn betur. Til dæmis verkkaupa, verktaka, verkfræðistofur, framleiðendur og samtök.
Þjónusta
Hugbúnaðarþróun
Mynstra smíðar hugbúnað og gervigreindarlausnir sem tengjast kerfum og gögnum sem fyrirtæki nota nú þegar. Mörg verkefnanna eru unnin fyrir byggingariðnaðinn, en aðferðirnar nýtast víðar.
Fyrir hverja
Leiðir
Rýni skjala með gervigreind
Lestur og rýni útboðsgagna, teikninga, reikninga og annarra skjala. Athugasemdir vísa í viðkomandi skjal svo auðvelt er að fara yfir þær.
Tengingar við Autodesk Forma og Procore
Líkön, magn og kostnaður sótt úr Autodesk Forma (áður ACC), athugasemdum og kostnaðartölum skilað til baka og gögn samstillt milli kerfa.
Gervigreind á eigin gögnum
Aðstoðarmaður sem leitar í skjalasöfnum fyrirtækisins, t.d. í SharePoint, svarar á íslensku og virðir aðgangsheimildir starfsfólks.
Tengingar fyrir gervigreindartól
MCP er staðall sem gerir Claude, ChatGPT og fleiri tólum kleift að vinna með kerfi fyrirtækisins. Mynstra smíðar slíkar tengingar, oft með lesaðgangi eingöngu eða þannig að starfsmaður samþykki hverja breytingu.
Sérsmíðuð rekstrarkerfi
Kerfi fyrir t.d. tímaskráningu, gæðaskjöl og bestun flutninga, þegar tilbúnar lausnir henta ekki.
Kort og landupplýsingar
Kortasjár og greiningar á landupplýsingum og skipulagsgögnum.
Vinnulag
Verkefni byrja yfirleitt á afmörkuðu tilraunaverkefni með raunverulegum gögnum. Ef það skilar árangri er lausnin þróuð áfram og tekin í rekstur. Mynstra getur séð um hýsingu og rekstur eða afhent lausnina í umhverfi viðskiptavinar, t.d. í Microsoft Azure.
Valdar eru gervigreindarþjónustur sem nýta ekki gögn viðskiptavina til að þjálfa líkön, og hýsing í Evrópu þar sem því verður við komið.
Algengar spurningar
Hver á hugbúnaðinn?
Um það er samið í hverju verkefni.
Hvaða gervigreind er notuð?
Það fer eftir verkefninu. Meðal annars líkön frá Anthropic, Google og OpenAI.
Er hægt að byrja smátt?
Já. Flest verkefni hefjast á tilraunaverkefni sem sýnir hvort lausnin skilar því sem til er ætlast.
Fyrirspurn
Agentinn getur tekið saman fyrirspurn með þér, eða þú sendir okkur póst á mynstra@mynstra.is.