Þjónusta

Stefnumótun og handleiðsla

Mynstra aðstoðar stjórnendur við að ákveða hvernig gervigreind er notuð á vinnustaðnum og við að koma þeim ákvörðunum í framkvæmd. Vinnan byggir á því hvernig starfsfólk vinnur í raun og hvaða kerfi og gögn eru til staðar.

Fyrir hverja

Stjórnendur fyrirtækja, stofnana og samtaka, hvort sem gervigreind er lítið notuð enn eða starfsfólk er farið að nota ólík tól án sameiginlegra reglna.

Leiðir

  • Stefna og reglur

    Stefna um notkun gervigreindar og hagnýtar leiðbeiningar til starfsfólks: hvaða tól eru notuð, hvaða gögn má nota og hver ber ábyrgð.

  • Stöðumat og tækifæri

    Vinnustofa, um þrjár klukkustundir, með stjórnendum eða þverskurði af vinnustaðnum, oft 10 til 20 manns. Eftir stuttan inngang er farið kerfisbundið yfir verkefni og ferla og metið hvar gervigreind og sjálfvirkni stytta ferla eða bæta gæði og hvar ávinningurinn er lítill. Niðurstaðan er forgangsraðaður listi af raunhæfum verkefnum í minnisblaði.

  • Innleiðingaráætlun

    Skref, ábyrgð og tímalína, frá fyrstu leyfum til fastra vinnubragða.

  • Innleiðing tóla

    Val á tólum, uppsetning leyfa og aðgangs, og tengingar við tölvupóst, skjalasöfn og önnur kerfi. Aðgangsheimildir eru yfirfarnar áður en kerfi eru tengd.

  • Handleiðsla

    Reglulegir fundir með stjórnendum og tengiliðum innan vinnustaðarins og aðstoð við starfsfólk á meðan breytingarnar ganga í gegn.

Algengar spurningar

Hvar er best að byrja?

Oftast á stuttu stöðumati og vinnustofu með lykilfólki. Þá liggur fyrir hvar ávinningurinn er mestur og hvað þarf að ákveða.

Þarf að kaupa ný kerfi?

Ekki endilega. Oft má ná langt með tólum sem eru þegar í notkun og tengja þau við gögnin sem fyrir eru.

Hvað með öryggi gagna?

Farið er yfir hvaða gögn mega fara í hvaða tól, hvar gögnin eru hýst og hvaða stillingar þarf.

Fyrirspurn

Agentinn getur tekið saman fyrirspurn með þér, eða þú sendir okkur póst á mynstra@mynstra.is.