Fasteignaeigendur, verkkaupa, verkfræði- og arkitektastofur, lagnahönnuði og framleiðendur.
Þjónusta
Verkfræðiráðgjöf og BIM
Mynstra vinnur verkfræðiverkefni þar sem gervigreind sér um stóran hluta vinnunnar, svo sem lestur teikninga, líkanagerð og magntöku. Verkfræðingur skipuleggur verkið, yfirfer niðurstöðuna og ber ábyrgð á henni.
Fyrir hverja
Leiðir
BIM-líkön af núverandi byggingum
Líkön unnin úr samþykktum teikningum og afhent sem IFC: veggir, gólf, stigar, gluggaveggir og rými, ásamt brunamerkingum, flokkun og hnitsetningu. Flatarmál og rúmmál reiknuð samkvæmt ÍST 50. Sjá Mynstra BIM.
Lagnalíkön, árekstrar og gataplan
Lagnateikningum í tvívídd er breytt í þrívítt líkan sem fellt er að líkani arkitekts. Árekstrar eru greindir, athugasemdir til hönnuða afhentar á BCF-sniði og gataplan unnið fyrir göt í steypu.
Magntaka
Magn úr teikningum og líkönum, t.d. lengdir lagna eftir kerfi og vídd og fjöldi tengistykkja og brunna. Afhent með merktum teikningum og samantekt í Excel.
Rýni hönnunar- og útboðsgagna
Yfirferð teikninga og verklýsinga eftir rýnilistum og athugun á samræmi milli skjala.
Forsteyptar einingar
Einingaskipting, járnbending og einingateikningar unnar úr líkani arkitekts.
Valkostagreining á frumstigi
Samanburður valkosta, t.d. legu vega eða lagna, út frá landupplýsingum, skipulagi og kostnaði.
Vinnulag og gæði
- Hver hlutur í líkani er rakinn til teikningar, og skráð er hvort mál er lesið af teikningu, mælt eftir mælikvarða eða ályktað.
- Sjálfvirkar prófanir og óháð rýni fara yfir líkanið áður en það er afhent.
- Verkfræðingur yfirfer allar afurðir.
- Líkön af núverandi byggingum byggja á samþykktum teikningum og eru því ekki uppmæling. Það kemur fram í hverri afhendingu.
Afhending
IFC-skrár (opinn staðall sem BIM-forrit lesa), BCF, Excel og PDF. Viðskiptavinur fær aðgang að verkefninu á bim.mynstra.is, þar sem hægt er að skoða líkanið í vafra og sækja skrárnar.
Algengar spurningar
Hversu nákvæm eru líkönin?
Jafn nákvæm og teikningarnar sem þau byggja á. Skráð er hvaðan hvert mál kemur, svo hægt sé að meta óvissuna.
Hvaða gögn þarf?
Samþykktar teikningar. Þær má oft sækja í teikningasafn sveitarfélagsins, t.d. Reykjavíkurborgar.
Kemur þetta í stað hönnuða?
Afurðirnar eru grunnur fyrir hönnuði og eigendur. Ábyrgð á hönnun liggur áfram hjá hönnuðum verksins.
Fyrirspurn
Agentinn getur tekið saman fyrirspurn með þér, eða þú sendir okkur póst á mynstra@mynstra.is.