Vinnustaði sem vilja að starfsfólk nýti gervigreind betur. Námskeiðin eru sniðin að getu hópsins, hvort sem fólk er að stíga fyrstu skrefin eða er lengra komið, og henta jafnt sérfræðingum sem öðru starfsfólki.
Fyrirlestrar og námskeið hafa verið haldin fyrir verkfræðistofur, verktaka og verkkaupa, sveitarfélög og opinberar stofnanir, lífeyrissjóði, fjölmiðla, orkufyrirtæki, fasteignasala, mannauðsfólk og hagsmunasamtök og aðildarfélög þeirra.